Herrakvöld Handknattleiksdeildar HK

Herrakvöld Handknattleiksdeildar HK 2023 verður haldið laugardaginn 29. apríl næstkomandi í veislusalnum í Kórnum. 

Það verður glæsilegt hlaðborð, uppboð og happadrætti ásamt frábærri dagskrá.

Húsið opnar klukkan 18:30 og veisluhald hefst klukkan 19:00

Dagskrá:

  • Veislustjórar kvöldsins eru Steve Dagskrá (Vilhjálmur Freyr og Andri Geir) og byrja þeir kvöldið klukkan 19:00.
  • Borðhald hefst kl. 19:30. Landsliðskokkar galdra fram 3ja rétta steikarhlaðborð með öllu tilheyrandi.
  • Glæsilegt happdrætti.
  • Ræðumaður: Andri Már Eggertsson (aka. Nablinn). Efnilegasti íþróttafréttamaður landsins mun sjá um ræðuhald ásamt því að stjórna uppboði kvöldsins á treyjum og málverkum.
  • Bjössi Greifi lokar síðan kvöldinu með stuði og stemningu.

Miðaverð: 9.900 kr.
10 Manna borð: 99.000 kr.

Miðasala fer fram á HK.is:
Kaupa miða hér.

Hlökkum til að sjá ykkur!