Kynning á hlaupahóp HK

Hlaupahópur HK verður með kynningu á sínu starfi þriðjudaginn 15.september kl 17:30 í veislusal HK í Kórnum.

Þar mun þjálfari hópsins Maxime Sauvageon halda kynningu á starfinu og strax af honum loknum verður létt hlaupaæfing.

Hópurinn hefur verið starfræktur í tæpt ár og eru meðlimir í kringum 20 talsins. Við höfum metnað til að stækka hópinn enn frekar og viljum fá nýja meðlimi í hópinn.

Verð:

4.mánuðir:     11.500 kr

6.mánuðir:     15.000 kr

12.mánuðir:    26.000 kr

Við hvetjum sem flesta HK-inga til að mæta á þriðjudaginn.

Áfram HK!