Sumarnámskeið HK - Skráning er hafin

Sumarnámskeið HK - Skráning er hafin

Í sumar mun HK bjóða upp á fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 til 14 ára (2009-2017). HK reynir eftir fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumarið er engin undantekning. Skipulögð dagskrá frá kl. 09:00–12:00 og 13:00-16:00 alla virka daga.

Umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi barna.

Skráning er hafin hér: SKRÁNING HÉR

Smellið hér fyrir frekari leiðbeiningar um skráningu í gegnum Sportabler

Í ár verða 5 mismunandi námskeið í boði:

Borðtennisskóli HK
Skráning Hér

4 námskeið (2011-2017)
Handboltaskóli HK
Skráning Hér
 5 námskeið (2011-2017)
Íþróttafjör HK
Skráning Hér
16 námskeið (2013-2017)
Knattspyrnuskóli HK
Skráning Hér
7 námskeið (2011-2016)
Krakkablak HK
Skráning Hér
6 námskeið (2009-2017)

Öllum námskeiðum í Kórnum lýkur með grillveislu í hádeginu á föstudögum í boði HK!

Gagnlegar upplýsingar:

  • Sama verð er á öll námskeið og hægt er að velja um hálfan dag eða heilan dag.
  • 10% systkinaafsláttur veittur af námskeiðum innan sömu deildar.
  • Ekki er heimilt að breyta skráningu námskeiða eftir að námskeið er hafið.
  • Hvert námskeið reiknast 3 klst
  • Fyrir heilsdagsnámskeið eru tvö stök námskeið sett í körfu
  • Gæsla 1 klukkustund á dag milli 08:00-09:00 eða 16:00-17:00  SKRÁNING HÉR
  • Gæslu fyrir og eftir námskeið þarf að setja sérstaklega í körfu og greiða fyrir.
  • Gert er ráð fyrir að börnin taki með sér hollt nesti og vatnsbrúsa en einn nestistími er á hverju námskeiði.
  • Börn sem eru á námskeiðum fyrir og eftir hádegi skulu mæta með hollt og gott hádegisnesti. Í Kórnum er aðstaða fyrir iðkendur að borða og bíða eftir næsta námskeiði. Starfsmenn eru á svæðinu.
  • SAMLOKUKORT og annað snarl er til sölu í afgreiðslu í Kórnum.
  • Upplýsingar um verð og staðsetningu námskeiða: verð fyrir námskeið er 8500.-, þær vikur sem eru styttri kosta hlutfallslega minna, og eru stjörnumerktar inní Sportbler
  • Verð fyrir gæslu 1 klukkustund á dag kostar 2000.-
  • Borðtennisskólinn er með aðstöðu í í Snælandsskóla, þar sem borðtennisæfingar hjá HK fara fram
  • Handbotaskólinn og Knattspyrnuskólinn eru í Kórnum
  • Íþróttafjörið er í Kórnum og nærumhverfi
  • Krakkablakið er í Fagralundi

Fleiri gagnlegar upplýsingar:

  •  HK áskilur sér rétt til að sameina námskeið ef ekki næst lágmarks þátttaka.
  •  HK áskilur sér rétt til að loka fyrir skráningu á námskeið ef hámarksfjölda er náð.
  •  HK áskilur sér rétt til að breyta dagskrá (t.d. vegna veðurs eða mætingar á námskeið).
  •  Það er mikilvægt að nærast vel og viljum við því biðla til foreldra að senda börn með hollt og gott nesti og vatnsbrúsa (einn kaffitími á hverju 3 klst. námskeiði)
  • ATH. Hnetur og aðrir bráða ofnæmisvaldar bannaðir.
  •  Iðkendur eru beðnir um að mæta klæddir eftir aðstæðum. Eftir veðri ef útivera er á dagskrá og eða í viðeigandi klæðnaði - íþróttafötum og helst íþróttaskóm.

Ef einhverjar spurningar vakna, hafið samband við skrifstofu HK í síma 5138700 eða netfangið: hk@hk.is