Álfaborg í samstarfi við blakdeild

_

Álfaborg og blakdeild HK hafa gert með sér styrktarsamning.

Í samningnum felst að Álfaborg gerist styrktaraðili deildarinnar til þriggja ára og fær auglýsingu á nýju keppnistreyjurnar hjá meistaraflokkunum, sem gert er ráð fyrir að komi í árslok.

Álfaborg er sérhæfð gólfefnavöruverslun og hefur starfað frá árinu 1986. Fyrirtækið býður upp á flott úrval af gólfefnum eins og parket, flísar, teppi o.fl. Þá hefur félagið undanfarið verið að búa sér til betri aðstöðu í verslun sinni í Skútuvogi 4. Það er því upplagt fyrir áhugasama að kíkja og njóta sérfræðiþekkingarinnar sem þar er að finna.

Annars má nálgast frekari upplýsingar í gegnum eftirfarandi tengla:

alfaborg.is     Facebook      Instagram


Við fögnum þessu samstarfi og segjum Áfram HK!