Frábær árangur á íslandsmóti ÍF í borðtennis

HK náðu frábærum árangri á íslandsmóti ÍF í borðtennis sem fór fram laugardaginn 15. október. HK unnu alla titla sem voru í boði í karlaflokki. 

Björgvin Ingi Ólafsson gerði sér lítið fyrir og vann 3 titla, í einliða, tvíliða og opnum flokki. Magnús Guðjónsson sigraði í flokki þroskahamlaðra og Hákon Atli Bjarkason í sitjandi flokki.

Til hamingju HK!