Stórmót HK og Stiga í borðtennis 2022

Stórmótið verður haldið í íþróttahúsinu Sjálandsskóla 12. nóvember kl. 10:00.

Skráningar skal senda á netfangið bordtennisdeildhk@gmail.com fyrir klukkan 17 föstudaginn 11. nóvember. Þáttökugjald er 1500 kr. og greiðist á staðnum

Dregið verður í riðla klukkan 18:00 í íþróttahúsinu Sjálandsskóla á föstudeginum.

Leikið verður í riðlum 3-5 lotur og fara 2 efstu upp úr riðli. Eftir riðlakeppnina verður einfaldur útsláttur 4-7 lotur þar til úrslit fást. Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hvorum flokki og pingpong.is umboðsaðili STIGA gefur vegleg verðlaun.

Leikið verður með STIGA 3ja stjörnu kúlum

Mótsstjórn skipa Björn Gunnarsson, Reynir Georgsson og Örn Þórðarson
Yfirdómari er Bjarni Bjarnason