- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Handknattleiksfélag Kópavogs
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Fyrirmyndar dómaratríó!!
2.flokkur karla mætti Val í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar síðastliðinn föstudag og vann frábæran 5-1 sigur.
Dómaratríóið hafði óhemju góð tök á leiknum enda sá Bestu deildar dómarinn og HK-ingurinn Gunnar Oddur Hafliðason um að flauta leikinn. Honum til aðstoðar voru tveir HK dómarar á uppleið, Kristófer Bergmann, aðstoðardómari úr Lengjudeildinni og Emil Gauti Vilhelmsson, sem er einn af okkar öflugustu og áhugasömustu dómurum úr unglingastarfinu okkar. Gunnar Oddur hefur mikinn metnað fyrir dómaramálum í félaginu okkar og mun á næstunni hefja skrif á stuttum pistlum um dómarastörf, leikreglurnar og fleira tengt hans helsta áhugamáli. Ekki veitir af fræðslu um þau mál.
Þeir sem hafa áhuga á að leggja fyrir sig dómgæslu og gefa þannig félagi sínu mikla gjöf, er bent á að hafa samband við Gunnar Odd með tölvupósti, gunnaroddur16@gmail.com eða Irfan dómarastjóra irfanbajramaj6@gmail.com. Þetta tríó er sannarlega frábærar fyrirmyndar fyrir alla okkar iðkendur, hvað varðar áhuga, metnað og ástríðu fyrir sínu fagi og félagi.
Gleði - Virðing - Metnaður