Handknattleiksfélag Kópavogs - Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Það er okkur hjá HK sannur heiður og mikið gleðiefni að hafa hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Viðurkenningin var veitt fyrir starf aðalstjórnar og sex deilda félagsins; bandýdeildar, blakdeildar, borðtennisdeildar, dansdeildar, handknattleiksdeildar og knattspyrnudeildar.

Þessi viðurkenning er staðfesting á því metnaðarfulla og faglega starfi sem fer fram á hverjum degi innan félagsins. Hún endurspeglar góða stjórnarhætti, skýra stefnu, öflugt barna- og unglingastarf og það sterka samfélag sem HK hefur byggt upp í gegnum árin.

HK varð 56 ára þann 26. janúar, en félagið var stofnað árið 1970 þegar átta drengir úr Kársnesskóla ákváðu að stofna handknattleiksfélag í Kópavogi. Frá þeim degi hefur félagið vaxið og dafnað og í dag er HK öflugt fjölgreinafélag með hundruð iðkenda, þjálfara, sjálfboðaliða og foreldra sem leggja sitt af mörkum á hverjum degi.

HK-hjartað er fullt af stolti.

Í frétt sem birtist á vef ÍSÍ í morgun segir Sveinbjörn: 

„Fyrir Handknattleiksfélag Kópavogs skiptir miklu máli að uppfylla skilyrði Fyrirmyndarfélaga ÍSÍ. Viðurkenningin er ákveðinn gæðastimpill á starf félagsins í heild. Það er mjög gleðilegt að fá þessa viðurkenningu og erum við stolt af henni,“ sagði Sveinbjörn Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri HK af þessu tilefni.

Á myndinni eru frá vinstri Alexander Arnarsson úr aðalstjórn HK, Andrés Jónsson úr aðalstjórn HK, Sigurjón Sigurðsson frá ÍSÍ, Sveinbjörn Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri HK og Jón Reynir Reynisson frá ÍSÍ. Sigurásta Sól Andrésdóttir, iðkandi í HK, heldur á fána Fyrirmyndarfélaga ÍSÍ með Jóni Reyni.