HK einu skrefi frá sæti í Olísdeild kvenna!

Kvennalið HK í handbolta er einu skrefi frá því að tryggja sér sæti í Olísdeild kvenna eftir sannfærandi sigur á FH í Kaplakrika í gær.

HK lagði FH að velli, 19-29, í leik þar sem liðið sýndi mikla yfirburði frá upphafi til enda. Varnarleikurinn var sterkur og sóknarleikurinn beittur, og sigurinn aldrei í hættu. 
Með sigrinum er staðan þannig að HK getur tryggt sér sæti í efstu deild með sigri í næsta leik, sem er jafnframt sá síðasti í deildinni á tímabilinu.

Lokaleikurinn fer fram gegn Fjölni á heimavelli í Kórnum sunnudaginn 22. mars kl. 18:00. 

Það er mikið undir og við viljum hvetja alla HK-inga til að mæta í Kórinn og styðja stelpurnar. Stuðningurinn úr stúkunni getur skipt sköpum!
Stelpurnar hafa sýnt mikla seiglu og baráttu í vetur og árangurinn er fyllilega verðskuldaður.

Við erum ótrúlega stolt af liðinu!
Áfram stelpur og áfram HK!