HK-ingur varð sænskur meistari – Einar Bragi með þrennuna í Svíþjóð

HK-ingurinn Einar Bragi Aðalsteinsson skrifaði sig í sögubækurnar í vikunni þegar hann varð sænskur meistari með IFK Kristianstad eftir sigur á Malmö í úrslitaeinvígi sænsku úrvalsdeildarinnar.

Með sigrinum fullkomnaði Kristianstad einstakt tímabil en liðið vann ekki aðeins meistaratitilinn heldur einnig deildarkeppnina og sænska bikarinn. Einar Bragi átti stóran þátt í þessum glæsilega árangri og var meðal lykilmanna liðsins í úrslitakeppninni.

Í úrslitaeinvíginu gegn Malmö fór Einar Bragi oft fyrir sínu liði. Hann skoraði meðal annars ellefu mörk í fyrsta leik liðanna, átta mörk í þriðja leiknum og var markahæstur þegar Kristianstad tók afgerandi skref í átt að titlinum.

Einar Bragi, sem ólst upp hjá HK og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki félagsins í Kórnum, hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af efnilegustu handknattleiksmönnum landsins. Nú hefur hann bætt sænskum meistaratitli á ferilskrána aðeins 24 ára gamall.

HK óskar Einari Braga innilega til hamingju með stórkostlegt tímabil og þennan glæsilega árangur. Félagið er afar stolt af sínum manni sem heldur áfram að láta til sín taka á stærstu sviðum handboltans.

Mynd: Eggert Jóhannesson