- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Stelpurnar léku af miklu öryggi og samheldni alla mótsvikuna og unnu sér verðskuldað sæti í úrslitaleiknum. Þar sýndu þær karakter, baráttuvilja og gæði sem skiluðu þeim glæsilegum sigri og gullverðlaunum.
Árangurinn er frábær viðurkenning á þeirri öflugu vinnu sem hefur verið unnin innan kvennastarfs HK. Leikmenn, þjálfarar og foreldrar eiga öll stóran þátt í þessum eftirminnilega árangri og stúlkurnar voru félaginu til mikils sóma jafnt innan vallar sem utan.
Við í HK erum afar stolt af þessum glæsilega hópi og óskum leikmönnum, þjálfurum og öllum sem stóðu að baki liðinu innilega til hamingju með titilinn.
Innilega til hamingju, HK-stúlkur – Helsinki Cup meistarar 2026!