Ljubljana-maraþonið

Hlaupahópur HK lagði land undir fót í október og hélt til Ljubljana í Slóveníu til að taka þátt í heilu og hálfu maraþoni.

Ljubljana-maraþonið hefur verið haldið árlega frá árinu 1996 og var hlaupið því haldið í þrítugasta sinn í ár. Af því tilefni var öllu til tjaldað.

Brautin er þekkt fyrir að vera flöt og þægileg og bjóða upp á frábær tækifæri til að skoða sögufræga borgina og helstu perlur hennar svo sem Tivoligarðinn, Drekabrúna og kastalann sem gnæfir yfir borginni og marksvæðinu.

Íbúar borgarinnar tóku virkan þátt í að skapa einstaka stemningu og hvöttu hlauparana áfram meðfram brautinni. Hlaupið fór fram við fullkomnar aðstæður, í logni og um 10 stiga hita. Öll framkvæmd hlaupsins var til fyrirmyndar og getum við svo sannarlega mælt með Ljubljana-maraþoninu fyrir hlaupara sem vilja sameina skemmtilegt hlaup og einstaka borgarupplifun.

Mikill tími og undirbúningur hafði farið í þjálfun og var sérstaklega skemmtilegt að njóta þess að sjá félagana sigra sjálfa sig en mörg persónuleg met féllu.

Dögunum fyrir og eftir hlaupið var svo varið í að skoða helstu kennileiti borgarinnar, njóta haustsólarinnar og gera vel við sig í mat og drykk, enda verðskuldað eftir stífar æfingar í haust.

Virkilega vel heppnuð ferð í alla staði. Það er ómetanlegt að tilheyra jafn frábærum félagsskap og Hlaupahópi HK, þar sem gleði, hvatning og samheldni eru í fyrirrúmi.

Í næstu viku, dagana 2-7.nóvember verður vinavika og áhugasömum velkomið að mæta á æfingu á þriðjudag (í Salalaug) og fimmtudag (í Kórnum) kl 17.45-19.00 til að máta sig við hópinn.

Með fréttinni má sjá myndir teknar af Helga Þór Arasyni hirðljósmyndara hópsins.