Lokahóf meistaraflokka HK í knattspyrnu

Lokahóf meistaraflokka karla og kvenna í knattspyrnu hjá HK fór fram í veislusal Kórsins síðastliðinn laugardag. Þar komu saman leikmenn, makar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar deildarinnar sem staðið hafa vaktina í kringum starf meistaraflokkanna í sumar.

Boðið var upp á góðan mat frá Bragðlaukum og Esju gæðafæði og áttu gestir ánægjulega kvöldstund saman. Að venju voru veittar viðurkenningar fyrir frammistöðu tímabilsins auk þess sem leikmenn sem náðu merkum leikjaáföngum á árinu 2026 voru heiðraðir.

Viðurkenningar í meistaraflokki karla

Besti leikmaður: Dominik Radic
Efnilegasti leikmaður: Karl Ágúst Karlsson
Knattspyrnumaður HK: Ívar Örn Jónsson

Viðurkenningar í meistaraflokki kvenna

Besti leikmaður: Cally Queen Togiai
Efnilegasti leikmaður: Ísabel Rós Ragnarsdóttir
Knattspyrnukona HK: Valgerður Lilja Arnarsdóttir

Leikjaáfangar

Nokkrir leikmenn náðu merkum áföngum í HK-treyjunni á árinu og fengu viðurkenningu af því tilefni.

50 leikir – meistaraflokkur karla

Viktor Helgi Benediktsson
Aron Kristófer Lárusson
Magnús Arnar Pétursson
Ólafur Örn Ásgeirsson
Jóhann Þór Arnarsson

50 leikir – meistaraflokkur kvenna

Ragnhildur Sóley Jónasdóttir
Henríetta Ágústsdóttir
Kristjana Ása Þórðardóttir

100 leikir – meistaraflokkur kvenna

Valgerður Lilja Arnarsdóttir

Þjálfarar meistaraflokkanna veittu einnig nýjar viðurkenningar á lokahófinu, en þær hlutu Ragnhildur Sóley og Andri Már.

Knattspyrnudeild HK óskar öllum þeim sem hlutu viðurkenningar og náðu leikjaáföngum á árinu innilega til hamingju og þakkar um leið leikmönnum, þjálfurum, stjórnarmönnum, sjálfboðaliðum og öðrum sem komu að starfi deildarinnar fyrir þeirra framlag á tímabilinu.

Áfram HK!