Magnús Haukur nýr þjálfari í knattspyrnustarfi HK

Magnús Haukur Harðarson skrifaði fyrr í vetur undir samning við HK og mun hann starfa sem aðalþjálfari í 3.flokki kvenna auk þess að vera partur af þjálfarateymi 2.flokks karla.
 
Magnús er 39 ára og hefur þjálfað frá árinu 2016, meðal annars yngri flokka hjá Þrótti, FH, Fjölni og Val, auk þess sem hann þjálfaði meistaraflokk kvenna hjá Fjölni. Magnús Haukur hefur lokið A þjálfaragráðu frá KSÍ og hefur, auk þjálfunarinnar starfað sem grunnskólakennari undanfarin fjögur ár.
 
Við bjóðum Magnús innilega velkominn og væntum þess að vera hans í félaginu lyfti því enn frekar, hvað okkar gildi varðar.
 
Áfram HK!
 
Gleði – Virðing - Metnaður