- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Skák
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Vatnsendahlaup HK verður haldið í þriðja sinn fimmtudaginn 10. september 2026 kl. 18:00. Hlaupið hefur fest sig í sessi sem skemmtilegur viðburður fyrir hlaupara sem vilja prófa sig áfram í utanvegahlaupi og kynnast fjölbreyttum hlaupaleiðum í fallegu umhverfi við jaðar Heiðmerkur.
Vatnsendahlaupið er 10 km utanvegahlaup þar sem hlaupið er um fjölbreytta stíga og leiðir á svæðinu. Leiðin býður upp á skemmtilega áskorun og gefur þátttakendum tækifæri til að kynnast stígum sem margir hafa jafnvel aldrei farið áður.
Hlaupið hentar breiðum hópi hlaupara og eru bæði byrjendur og lengra komnir hvattir til að taka þátt. Markmiðið er að skapa skemmtilega hlaupastemningu þar sem allir geta fundið áskorun við sitt hæfi, hvort sem stefnan er sett á góðan tíma eða einfaldlega að njóta þess að hlaupa í góðum félagsskap og fallegu umhverfi.
Vatnsendahlaup HK gefur jafnframt ITRA-punkta og getur því verið áhugaverður kostur fyrir utanvegahlaupara sem eru að safna punktum.


Skráning í VatnsendahlaupHK er hafin á netskraning.is
Skráningargjald: 3.900 kr.
Ungmennagjald: 1.500 kr.
Við hvetjum hlaupara til að tryggja sér sæti og taka þátt í skemmtilegu hlaupakvöldi með HK fimmtudaginn 10. september.
Vatnsendahlaup HK 2026
📅 Fimmtudagur 10. september
⏰ Kl. 18:00
🏃 10 km utanvegahlaup
💰 Skráningargjald 3.900 kr.
💰 Ungmennagjald 1.500 kr.
Nánari upplýsingar og fréttir af hlaupinu má finna á Facebook-síðu Vatnsendahlaups HK og á Facebook-viðburði hlaupsins.