Bryndís Gréta skrifar undir við HK

Bryndís Gréta Björgvinsdóttir hefur skrifað undir samning við HK. 

Bryndís er 21 árs varnarmaður sem gekk til liðs við HK frá Leikni síðasta sumar og spilaði stóra rullu í liðinu sem tryggði sér sæti í Lengjudeild kvenna.

"Bryndís spilaði lykilhlutvek í liði HK síðastliðið sumar og átti gott tímabil. Það er mikið gleðiefni að hún sé búin að skrifa undir samning og okkur hlakkar til að hjálpa henni að vaxa enn frekar. Við væntum mikils af henni á komandi tímabili" segir Jakob Leó Bjarnason þjálfari HK.

Áfram HK!


GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR