Elísabet Eir til HK

Elísabet Eir Hjálmarsdóttir
Elísabet Eir Hjálmarsdóttir

Elísabet Eir Hjálmarsdóttir hefur gengið til liðs við HK.

Elísabet er 19 ára leikmaður sem kemur til HK frá Fjarðarbyggð/Hetti/Leikni þar sem hún hefur leikið frá 2016. Árið 2018 spilað hún með Þrótti Reykjavík í Inkasso deildinni.

“Elísabet Eir er öflugur leikmaður sem kemur með ákveðin gæði í okkar leikmannahóp. Hún er vinnusöm og góð á boltann og á eftir að nýtast okkur vel á komandi tímabili. Elísabet er fjölhæf en leikur yfirleitt sem bakvörður eða kantmaður. Okkur hlakkar til samstarfsins með henni og væntum mikils af henni á komandi tímabili” segir Jakob Leó Bjarnason þjálfari HK.

Vertu velkomin í HK Elísabet!

 


GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR