Gabriella Coleman semur við HK

-

Knattspyrnudeild HK hefur samið við Gabriella Coleman, bandarískan sóknarmann og gildir samningurinn til tveggja ára.  

Gabriella er 24 ára gömul frá Texas í Bandaríkjunum. Hún er nýútskrifuð frá Oklahoma State háskólanum þar sem hún lék með liði skólans í háskólaboltanum. 

Guðni Þór Einarsson þjálfari liðsins væntir mikils af komu hennar til félagsins: 

“Gabriella er fljót, líkamlega sterk og áræðinn leikmaður og auk þess að vera mikill markaskorari þá er hún að leggja upp mörk fyrir liðsfélaga sína. Við væntum mikils af henni á komandi tímabili og mun hún styrkja okkar unga efnilega hóp mikið”

Velkomin í HK Gabriella!