Íþróttahátíð HK 2019

Íþróttahátíð HK var haldin hátíðleg sl. fimmtudag í veislusal Kórsins. Þetta var í fjórða sinn sem hátíðin er haldin með þessu fyrirkomulagi. 

Á íþróttahátíðinni heiðrum við okkar íþróttafólk fyrir góðan árangur á árinu og valið á íþróttamanni og -konu HK kunngjört í lok hennar. 

 

 

 

 

 

 

 

Íþróttamaður HK 2019 er Ásgeir Börkur Ásgeirsson 

Ásgeir Börkur átti stóran þátt í því að HK hélt sæti sínu  í efstu deild á þessu árið með gríðarlega öflugri innkomu í liðið. Hann var valinn leikmaður ársins á lokahófi knattspyrnudeildar HK 2019 og var meðal varamanna í liði ársins hjá fótbolta.net fyrir tímabilið 2019 í Pepsi Max deildinni. Hann er frábær innan vallar sem utan með sýna leiðtogahæfileika. Ásgeir er góður liðsmaður, tilbúin að vinna fyrir liðið og gefur allt sem hann á í hvern einasta leik.

Íþróttakona HK 2019 er Berglind Þorsteinsdóttir 

Berglind er gríðarlega mikilvægur hlekkur í meistaraflokksliði HK í handbolta kvenna. Hún bindur vörn liðsins saman. Hún hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og spilaði með A landsliðinu í æfingaleikjum gegn Svíþjóð fyrir ári síðan. Berglind á framtíðina fyrir sig fyrir HK og Ísland.  Berglind er fyrirmyndarleikmaður. Metnaðargjörn, dugleg, með mikla þrautsegju og frábært hugarfar. 

Unga og efnilega íþróttafólkið okkar var líka heiðrað, en eftirfarandi íþróttafólk var tilnefnt til íþróttakarls og –konu Kópavogsbæjar í flokknum 13-16 ára:

Frá Blakdeild HK

Björn Ingi Sigurðsson

Heba Sól Stefánsdóttir

Frá Dansdeild HK

Ivan Coric

Elísabet Alda Georgsdóttir

Frá Knattspyrnudeild HK

Ari Sigurpálsson

Dagný Rún Pétursdóttir

Frá Handknattleiksdeild HK

Telma Mendos

Haukur Ingi Hauksson

 

Í ár voru eftirfarandi flokkar heiðraðir fyrir góðan árangur:

2. flokkur karla - blakdeild - Urðu bikarmeistarar

2. flokkur kvenna - blakdeild - Urðu bikarmeistarar

5. flokkur karla B lið - knattspyrnudeild - Urðu íslandsmeistarar

 

Eftirfarandi einstaklings heiðranir voru veittar:

Gylfi Már Hrafnsson og María Tinna Hauksdóttir

Afrek þeirra á árinu:

Reykjavík International Games meistarar í ballroom dönsum

Bikarmeistarar ungmenna í ballroom dönsum

Íslandsmeistarar ungmenna í 10 dönsum

Íslandsmeistarar ungmenna í ballroom dönsum

UMSK open meistarar ungmenna í ballroom dönsum

Lotto open meistarar ungmenna í ballroom dönsum

Sweden open U21 meistarar í ballroom dönsum

U19 Italy open meistar í ballroom dönsum

Norðurlandameistarar ungmenna 2019

 

Þeir einstaklingar, í flokki fullorðinna, sem deildir félagsins tilnefndu til íþróttamanns og –konu HK 2019 eru 

Blakdeild HK

Elvar Örn Halldórsson
Elísabet Einarsdóttir

Dansdeild HK

Gylfi Már Hrafnsson
María Tinna Hauksdóttir

Handknattleiksdeild HK

Berglind Þorsteinsdóttir
Pálmi Fannar Sigurðsson

Knattspyrnudeild HK

María Lena Ásgeirsdóttir
Ásgeir Börkur Ásgeirsson

Til hamingju allir með frábæran árangur á árinu 2019 

Áfram HK