Valgeir Valgeirsson í æfingahópi U21

Davíð Snorri Jónasson U21 landsliðsþjálfari hefur valið æfingahóp fyrir U21 landslið Íslands.

 

Æfingahópurinn að þessu sinni er eingöngu skipaður leikmönnum sem leika á Íslandi og er Valgeir Valgeirsson í hópnum.

 

Æfingarnar fara fram dagana 28.október - 4.nóvember og eru undirbúningur fyrir leikina gegn Liechtenstein og Grikklandi sem fram fara ytra í nóvember. Lokahópur verður tilkynntur síðar. 

 

Við óskum Valgeiri til hamingju með valið.

 

Áfram HK!