Viktor Bjarki kveður HK

Viktor Bjarki Arnarsson hefur látið af störfum sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu.

Viktor á að baki farsælan feril sem leikmaður en hann kom til HK árið 2017.

Fyrst um sinn var hann spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og átti þátt í því að koma liðinu upp í efstu deild árið 2018. Eftir að hann lagði skóna á hilluna hefur hann haldið áfram sem aðstoðarþjálfari Brynjars Björns Gunnarssonar auk þess að starfa um tíma sem afreksþjálfari í 2. og 3. flokki karla og kvenna.

Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Viktori fyrir vel unnin störf í þágu HK og óskar honum velfarnaðar í nýjum verkefnum.