Freyja og handknattleiksdeild HK framlengja

Pétur Thor Gunnarsson framkvæmdastjóri Freyju og Guðjón Björnsson úr stjórn handknattleiksdeildar ha…
Pétur Thor Gunnarsson framkvæmdastjóri Freyju og Guðjón Björnsson úr stjórn handknattleiksdeildar handsala samninginn

Á dögunum skrifuðu handknattleiksdeild HK og Freyja Sælgætisgerð undir nýjan þriggja ára samstarfssamning. HK-ingar eru afar þakklátir enda mikilvægt að jafn öflugur aðili og Freyja starfi áfram með okkur.

Freyja er framsækið fyrirtæki sem státar af því að vera eitt elsta fyrirtæki á Íslandi á sviði sælgætisgerðar um leið og það framleiðir rúmlega 100 vörutegundir af gómsætu gotti á heimsmælikvarða.

Handknattleiksdeild HK er afar ánægð með að eitt elsta fyrirtæki Kópavogs haldi áfram stuðningi við deildina og hlakkar til áframhaldandi samvinnu.

 

Áfram HK!