- HK
- Handbolti
- Fótbolti
- Blak
- Bandý
- Rafíþróttir
- Borðtennis
- Dans
Guðrún Erla Bjarnadóttir hefur skrifað undir samning við Handknattleiksdeild HK og var í leikmannahópi meistaraflokks sem mætti liði ÍBV í vikunni.
Guðrún Erla er uppalin í HK en hefur undanfarin ár spilað með Stjörnunni, Haukum og nú síðast með Fram.
Guðrún Erla er frábær liðsstyrkur í lið HK en hún getur spilað bæði sem skytta og leikstjórnandi.
Við bjóðum Guðrúnu Erlu velkomna heim í HK!
Áfram HK!