Hákon Hermansson Bridde ráðinn yfirþjálfari HK

Barna- og unglingaráð HK hefur ráðið Hákon Hermannsson Bridde sem yfirþjálfara yngriflokka hjá HK. Hákon þarf ekki að kynna fyrir HK-ingum en hann lék með HK upp alla yngriflokkana og spilaði fjölmarga leiki með meistaraflokki HK.  Þá þjálfaði Hákon um árabil yngri flokka félagsins og kom einnig að þjáfun meistaraflokka HK.

Árin 2018 - 2020 þjálfaði Hákon meistarflokk karla og kvenna og yngriflokka Florø SK handball í Noregi, en undanfarið ár hefur hann verið yfirþjálfari hjá Gróttu.

Hákon er með BSc gráðu í Sport Science frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í kennslufræðum frá sama skóla.

Sem yfirþjálfari mun Hákon leiða það verkefni að efla yngriflokkastarf HK með fræðslu og stuðningi við þjálfara, auk þess að þjálfa sjálfur yngri flokka hjá félaginu. Hákon mun einnig starfa sem handboltaþjálfari við MK akademínuna og leiða afreksstarf HK.

Velkominn heim Hákon!


GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR