Harri hættir

Stjórn handknattleiksdeildar HK hefur ákveðið að ljúka samstarfi sínu við Halldór Harra Kristjánsson og hefur hann látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs HK.

Harri hafði ákveðið að láta staðar numið að loknu tímabilinu en það var einhugur hjá stjórn að breytinga væri þörf á þessum tímapunkti.
HK vill þakka Harra kærlega fyrir vel unnin störf á þeim 4 árum sem hann hefur starfað fyrir félagið.

Stjórn handknattleiksdeildar HK