HK og Macron framlengja


Í dag , föstudaginn 7. janúar var undirritaður áframhaldandi samningur við Macron um búningamál félagsins til næstu 6. ára.

Samstarf HK og Macron hefur gefist einkar vel undanfarin 6 ár og erum við spennt fyrir áframhaldandi samstarfi og þjónustu.

Macron opnaði á seinasta ári glæsilega verslun á nýjum stað í Skútuvogi 11, en þar sem og á vefsíðu macron.is má nálgast merktan HK fatnað og annan íþróttatengdan varning.

Áfram HK!