HK spilar um laust sæti í Olís deildinni

Mynd: Hulda Margrét ljósmyndar/photography
Mynd: Hulda Margrét ljósmyndar/photography

Á laugardaginn hefst úrslitaeinvígi á mill HK og Gróttu um það hvort liðið tekur laust sæti í Olís deild kvenna á næsta tímabili. Það lið sem fyrr vinnur 2 leiki leikur í Olísdeildinni.

Það kom í hlut HK, Fjölnis/Fylkis, Gróttu og ÍR að spila umspils leiki að lokinni deildarkeppni í Olís- og Grill 66 deildinni. Þar mættu annars vegar HK og Fjölnir/Fylkir og hins vegnar Grótta og ÍR. HK stelpur unnu sína viðureign við Fjölni/Fylki nokkuð sannfærandi 2-0 en það lið sem fyrr vann tvo leiki fór áfram í úrslitaeinvígið. Í hinni viðureigninni hafði Grótta betur 2-1.

Einungis eru 3 ár liðin frá því að sömu lið, HK og Grótta, spiluðu úrsiltarimmu í umspili um það hvort liðið tæki sæti í efstu deild. Síðan þá hefur Grótta spilað í Grill deildinni en HK í Olís deildinni.

Það er því ljóst að framundan er verðugt og skemmtilegt verkefni, bæði liðin munu leggja hart að sér til þess að ná sínum markmiðum. Við hvetjum við alla HK-inga til þess að mæta og styðja við bakið á okkar stúlkum í komandi viðureignum, ykkar stuðningur skiptir máli.

Dagskrá næstu daga er eftirfarandi:

Laugardagur 22. maí kl. 17:00
HK – Grótta

Þriðjudagur 25. maí kl. 19:30
Grótta – HK

Föstudagur 28. maí kl. 19:30 (ef þarf)
HK – Grótta

Áfram HK!


  GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR