Ingibjörg Gróa framlengir

Inga verður áfram hjá HK!
Inga verður áfram hjá HK!

Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir markmaður hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild HK.

Inga er 20 ára uppalinn HK-ingur og hefur í vetur staðið vaktina í marki meistaraflokks kvenna ásamt Margréti Ýri. Inga hefur einnig spilað með yngri landsliðum Íslands, U-lið meistaraflokks auk þess að þjálfa unga iðkendur hjá HK.

Það er mikið gleðiefni Inga hafi ákveðið að semja á ný við HK, það verður spennandi að fylgjast með henni takast á við komandi verkefni með meistaraflokki.

 

Áfram HK.