Íþróttahátíð Kópavogsbæjar streymi

Beint streymi verður frá íþróttahátíð Kópavogs á morgun, föstudaginn 15. janúar frá klukkan 17:00.

Streymið verður hægt að finna á heimasíðu Kópavogsbæjar (forsíðu) á morgun og einnig á Facebook síðu Kópavogsbæjar.

Dagskrá hátíðarinnar:

17:00    Viðurkenningar í flokki 13-16 ára.

            32 iðkendur úr hinum ýmsu greinum taka á móti

            viðurkenningu íþróttaráðs vegna árangurs á árinu 2020.

17:30    Lið ársins og Heiðursviðurkenning íþróttaráðs.

            Lið ársins fær viðurkenningu (4-5 fulltrúar liðsins mæta)

            og svo fá 3 aðilar heiðursviðurkenningu íþróttaráðs.

18:00    Viðurkenningar í flokki 17 ára og eldri og kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli ársins lýst.

             10 iðkendur (5 karlar og 5 konur) taka á móti viðurkenningu íþróttaráðs og í beinu framhaldi verður lýst

             kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli ársins.


GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR