Jóhanna Lind skrifar undir

Jóhanna Lind hefur gert tveggja ára samning við HK.
Jóhanna Lind hefur gert tveggja ára samning við HK.

Jóhanna Lind Jónasdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild HK. Jóhanna Lind er hluti af efnilegum hópi stúlkna úr 3. flokki félagsins sem urðu Íslandsmeistarar í vor eftir sigur á Haukum í úrslitaleik.

 

Jóhanna er hæfileikaríkur, örvhentur hægri hornamaður. Hún hefur frábæra skothönd og hefur tekið mikilum framförum sem handboltakona á undanförnum misserum. Jóhanna Lind kom inn í hóp meistaraflokks á vormánuðum og hefur frá því á síðasta tímabili tekið þátt í verkefnum bæði með honum auk þess að spila með U-liði meistaraflokks í Grill 66 deildinni.

 

Áfram HK!