Penninn á lofti

Bjarki Finnbogason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning.

Bjarki er 24 ára uppalinn HK-ingur og er í dag einn af leikjahærri leikmönnum liðsins og á orðið vel á annað hundrað leiki fyrir félagið.

Bjarki var okkar besti maður árið 2019 þegar vð unnum okkur sæti í efstu deild eftir nokkurra ára fjarveru. Bjarki varð síðan fyrir því óláni að slíta krossband og missti því  nánast af öllu tímabilinu í fyrra og hefur verið að vinna sig rólega til baka.

Bjarki er frábær drengur og mikill félagsmaður og gleður það okkur mikið að hafa hann áfram innan okkar raða!