Sara Katrín markadrottning Grill 66 deildarinnar

Við HK-ingar eigum markadrottningu Grill 66 deildarinnar. Sara Katrín Gunnarsdóttir átti gott tímabil með HK U og skoraði 154 mörk í 16 leikjum. Á eftir henni komu þær Erna Guðlaug Gunnarsdóttir (Fram U) með 134 mörk og Arna Þyrí Ólafsdóttir (Víkingur) með 112 mörk.

Virkilega vel gert hjá okkar konu en nánar má lesa um markahæstu leikmenn Grill 66 deildarinnar hér: https://www.handbolti.is/sara-katrin-skoradi-naerri-10-mork-ad-jafnadi-i-leik/

Til hamingju Sara og HK!

 

 

 

 


  GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR