Velkominn í Kórinn Óli!

Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha eða Óli eins og hann er kallaður hefur skrifað undir 3 ára samning við HK.

Óli er örvhent skytta sem kom á láni til okkar í vetur frá UMFA, hann féll strax vel inn í hópinn og umhverfið og óx honum ásmegin þegar leið á tímabilið.

Hann var undir lok tímabils orðinn einn af máttarstólpum liðsins í vörn og sókn.

Það er mjög ánægjulegt að hafa náð samkomulagi við Óla, við lítum á hann sem lykilmann í uppbyggingu félagsins á komandi árum og hlökkum til að sjá hann blómstra í HK-treyjunni.