- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Knattspyrnudeild HK hefur ráðið Jón Stefán Jónsson í fullt starf hjá félaginu.
Jón Stefán, oftast kallaður Jónsi er reynslumikill þjálfari og hefur komið víða við og þjálfað hjá Haukum, KF, Tindastól, Þór og síðast Þór/KA. Einnig hefur hann verið í þjálfarateymi U19 ára landsliði kvenna.
Jónsi mun á næsta ári útskrifast með UEFA Pro gráðu frá KSÍ en fyrir er hann með UEFA A og UEFA Youth Elite (Afreksþjálfun barna og unglinga)
Hjá HK mun Jónsi sjá um afreksþjálfun 2.fl – 5.fl auk eftirfylgni og stuðning við yngra landsliðsfólk. Hann mun koma að þjálfun í yngri flokkum félagsins auk þess að koma inn í þjálfarteymi meistaraflokka karla og kvenna, þar verður hann aðstoðarþjálfari og mun sjá um leikgreiningu.
Jón Stefán: " Ég er hæst ánægður að vera kominn í HK og lýst frábærlega á þær hugmyndir sem félagið ætlar sér að vinna eftir. Möguleikar félagsins innan vallar sem utan eru sennilega þeir mestu á landinu og það er geggjað að fá að vera hluti af þeirri vegferð "
Knattspyrnudeild HK fagnar komu Jón Stefáns til félagsins og væntir mikils til samstarfsins.
Velkominn í HK Jón Stefán!