Sandra Sigurðardóttir nýr framkvæmdastjóri HK

Gengið hefur verið frá ráðningu Söndru Sigurðardóttur sem framkvæmdastjóra HK. Sandra er með víðtæka reynslu úr íþróttastarfi sem yfirþjálfari og framkvæmdastjóri fimleikadeildar Hamars og stjórnarmaður í fimleika- og knattspyrnudeild félagsins ásamt því að hafa sinnt stjórnarsetu og trúnaðarstörfum fyrir ýmis sérsambönd. Hún hefur verið í eigin rekstri tengdum heilsueflingu, starfað sem kennari á leikskóla- og grunnskólastigi og verið leiðandi í bæjarmálum í Hveragerði. Sandra er með b.sc. gráðu í íþrótta- og heilsufræði og MBA próf frá Háskóla Íslands, hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu og mikla reynslu af stefnumótun og innleiðingu stefnu. Sandra mun hefja störf 1. febrúar 2024.

Árnína Steinunn Kristjánsdóttir formaður HK: 

„Það er ánægjulegt að til starfsins ráðist jafn öflugur leiðtogi og Sandra hefur sýnt að hún sé, með fjölbreyttan bakgrunn. Rekstur stórs íþróttafélags eins og HK, með margar og ólíkar deildir, er umfangsmikill og mikilvægt að starfið sé leitt með öflugri forystu og framsýni í huga. Framundan hjá okkur í HK eru mikilvæg verkefni, stefna okkar og grunnmarkmið er að um æfingasvæðið okkar hlaupi brosandi og örugg börn sem fyrr, meistaraflokkar nái árangri í sínum deildum og starfsfólk félagsins sé ánægt. Við erum komin af stað, í samstarfi við bæjaryfirvöld,  með hönnun og uppbyggingu stúku á félagssvæðinu okkar upp á Vatnsenda sem er mikilvægt verkefni næstu missera sem og fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir brottfall barna úr íþróttum og tryggja nýliðun, ég hlakka til að fylgjast með Söndru í þessu verkefnum. Um leið langar mig að óska fráfarandi framkvæmdastjóra félagsins, Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur,  sem hefur óskað eftir að lausn frá störfum, velfarnaðar í næstu verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur og þakka fyrir gott samstarf, hún skilar af sér góðu búi með öflugu íþróttastarfi“. 

Sandra Sigurðardóttir, nýráðin framkvæmdastjóri HK: 

„Ég mæti spennt til leiks í nýju verkefni og hlakka til að stækka og efla HK hjartað. Félagið hefur mikla vaxtamöguleika í gegnum allar þær fjölbreyttu deildir sem þar eru og komandi uppbyggingu á félagssvæðinu. Við erum með öflug þjálfarateymi og metnaðarfulla sjálfboðaliða sem ég hlakka til að starfa með auk þeirra tæpu þrjú þúsund iðkenda sem hjá félaginu eru. Við ætlum að fjölga þeim enn frekar um leið og við skilum bikurum í hús!“.