- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
A-landslið karla spilar í undankeppni EM 2023.
Við eigum þar nokkra leikmenn í hópnum en það eru þeir Arnar Birkir Björnsson, Lúðvík Már Matthíasson, Kristófer Björn Ólason Proppé, Markús Ingi Matthíasson og Valens Torfi Ingimundarson.
Liðið er í riðli með Portúgal, Svartfjallalandi og Lúxemborg. Sex leikir samtals, þrír úti og þrír heima. Útileikirnir 3., 10. og 17. ágúst. Heimaleikirnir allir leiknir í Digranesi, en nánari tímasetningar eru eftirfarandi:
Sunnudagur 7. ágúst kl. 15:00 - Lúxemborg
Sunnudagur 14. ágúst kl. 15:00 - Svartfjallaland
Sunnudagur 21. ágúst kl. 15:00 - Portúgal
Miðasalan er hafin í Stubb appinu. Við hvetjum alla þá sem geta að tryggja sér miða, mæta upp í Digranes og hvetja strákana okkar!
Það má síðan endilega fylgja strákunum á Instagram,
www.instagram.com/blaklandslid/
Einnig væri sniðugt að fylgjast með FB síðu og Instagram Blaksambandsins upp á frekari upplýsingar og streymi frá útileikjunum,
www.facebook.com/blaksamband.islands /
www.instagram.com/blaksamband/
Gangi ykkur vel strákar og Áfram Ísland!!