Íþróttamótum í fyrramálið hefur verið aflýst
11.11.2023
Íþróttamótum sem halda átti í Kórnum í fyrramálið hefur verið aflýst.
Um er að ræða Krónumótið í fótbolta annars vegar og Íslandsmót hjá 5. flokki kvenna hins vegar.
Fjöldahjálparstöð hefur verið sett upp í húsinu fyrir þá Grindvíkinga sem hafa þurft að flýja heimili sín.