Hjartað slær fyrir HK.

 

Mikilvæg uppbygging fyrir HK

Árnína Steinunn Kristjánsdóttir formaður HK var í viðtali við Kópavogspóstinn á dögunum. Þar fer hún meðal annars yfir stúkuna og þær framkvæmdir sem framundan eru hjá HK. ,,Bygging stúkunnar er gríðarlega mikilvæg okkar starfi. Við höfum beðið eftir þessari stúku lengi þó að það fari ekki illa um okkur á heimaleikjum okkar inn í Kórnum enda er það ein glæsilegasta aðstaða á landinu hvað varðar knatthús. En stúka sem þessi mun klárlega lyfta starfinu okkar enda er krafa um að leikir meistaraflokkanna séu spilaðir úti eins og hjá öðrum félögum og líklegt að iðkendafjöldi aukist á næstu árum með frekari uppbyggingu hverfisins og þá veitir ekki af auka velli.” segir Árnína. 

 

Viðtalið í heild má lesa hér.