HK ræður Daða Rafnsson sem yfirmann knattspyrnuþróunar

Knattspyrnudeild HK hefur gert samning við Daða Rafnsson sem yfirmann knattspyrnuþróunar hjá félaginu. Daði mun taka að sér ráðgjöf og verkefnastjórn sem miðar að því að leita tækifæra í félaginu sem eiga að lyfta knattspyrnudeild HK í hóp öflugustu deilda landsins. Það er mikið fagnaðarefni að fá Daða til félagsins og þannig styrkja annars sterkan hóp starfsmanna félagsins. HK er á vegferð að verða eitt öflugasta knattspyrnufélag landsins og það skiptir miklu máli að vinna að áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Daði hefur svo sannarlega reynslu sem á eftir að nýtast HK vel í þessari uppbyggingu. Daði er fagstjóri Afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi, sem var stofnað fyrir rúmu ári síðan. Hann er fyrrum yfirþjálfari knattspyrnudeildar Breiðabliks og var aðstoðarþjálfari Jiangsu Suning í atvinnumannadeild kvenna í Kína. Hann er jafnframt stundakennari við íþróttafræðisvið Háskólans í Reykjavík og vinnur að doktorsrannsókn í íþróttafræði við sama skóla. „Það er mjög spennandi að fá að koma að þeirri uppbyggingu sem á sér stað í HK um þessar mundir“, segir Daði. „Deildin er með þeim fjölmennustu á landinu og meistaraflokkarnir stefna markvisst hærra þannig að ég hef mikla trú á því að það sé hægt að vinna hér gott starf með því öfluga fólki sem hér starfar.“ „Í raun má segja að HK sé nú nýtt félag á gömlum grunni eftir flutninginn í efri byggðir Kópavogs. Aðstaðan, stærðagráðan og möguleikarnir til að ná árangri er öll til staðar og ég upplifi einarðan vilja stjórnar til að láta það tækifæri ekki úr hendi sleppa. Mitt verkefni er að veita faglega ráðgjöf og stýra verkefnum úr hlaði sem geta aukið gæði í starfi deildarinnar. Ég þakka stjórnendum traustið til að fá að einblína á framtíðina og hlakka til að vinna með lykilstarfsmönnum deildarinnar að því að koma HK í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu.“



Við í stjórn Barna og Unglinaráðs HK erum virkilega spennt fyrir því að fá Daða í okkar hóp. Hann hefur reynslu og þekkingu sem við teljum að lyfti því gæða starfi í HK sem á sér stað nú þegar í hæstu hæðir. Okkar von er að koma Daða geri góða þjónustu fyrir iðkendur knattspyrudeildar HK enn betri og ekki síst að þeir starfsmenn sem starfa hjá deildinni fá tæki og tól til að þróast enn frekar í sínum knattspyrnufræðum. Við bjóðum Daða hjartanlega velkomin og hlökkum til að vinna með honum að framgangi HK.