Leandra Náttsól framlengir

Leandra Náttsól Salvamonser
Leandra Náttsól Salvamonser

Leandra Náttsól Salvamoser hefur framlengt samning sinn við HK til ársins 2026.

Leandra er örvhentur hornamaður og lykilleikmaður í meistarflokki kvenna.

Leandra er traustur varnarmaður, öflug í hraðaupphlaupum og nýtir færin sín vel horninu. Leandra hefur komið gríðarlega sterk inn í síðustu leikjum en hún var frá í upphafi tímabilsins vegna meiðsla. Leandra hefur skorað 29 mörk í 10 leikjum í vetur. 

#LiðFólksins