Aðalfundur HK 2023

Aðalstjórn HK boðar til aðalfundar HK sem haldinn verður fimmtudaginn 8. júní kl. 17:30 í hátíðarsal HK í Kórnum.  

Dagskrá:

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.

b) Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar er sannreynir atkvæðisbærni félaga.

c) Fundargerð síðasta aðalfundar lesin og borin upp til samþykktar.

d) Skrifleg skýrsla aðalstjórnar og skýrslur deilda lagðar fram til umræðu.

e) Endurskoðaður ársreikningur aðalstjórnar ásamt endurskoðuðum ársreikningum einstakra deilda lagðir fram til umræðu og samþykktar.

g) Lagabreytingar.

i) Kosningar:

i.            Kosning formanns (annað hvort ár)

ii.            Kosning þriggja til sex stjórnarmanna

j) Ákvörðun félagsgjalda.

k) Önnur mál.

Tillögur um lagabreytingar skulu berast framkvæmdastjóra félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund og skulu þær liggja frammi á skrifstofu félags fram að aðalfundi. 

Uppstillingarnefnd auglýsir eftir framboðum og tillögum um frambjóðendur til embætta sem kosið er um á aðalfundinum. Framboðum skal skilað til framkvæmdastjóra eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Senda má gögn á netfangið:  hk@hk.is

Kópavogur, 19. maí 2023

Aðalstjórn HK