Aðalfundur knattspyrnudeildar HK

Aðalfundur knattspyrnudeildar HK 25.mars 2026

 

Stjórn knattspyrnudeildar boðar til aðalfundar miðvikudaginn 25. mars nk. í veislusal Kórsins.  Fundurinn hefst kl. 20:30.

Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og ritara
  2. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin upp og borin til samþykktar
  3. Lögð fram skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
  4. Lagður fram ársreikningur til umræðu og afgreiðslu til aðalstjórnar HK
  5. Kosning formanns, stjórnarmanna og formanna flokksráða
  6. Breytingatillögur á starfsreglum deildarinnar
  7. Önnur mál

Allir félagsmenn knattspyrnudeildar, 18 ára og eldri, eru kjörgengir og geta boðið sig fram til setu í stjórn eða ráðum.  Skriflegu framboði skal skila til framkvæmdastjóra félagsins að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund eða í síðasta lagi klukkan 20:30 miðvikudaginn 18. mars 2026.

Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu HK.  https://www.hk.is/is/um-hk/log-handknattleiksfelags-kopavogs

Í kjölfar aðalfundar verður skipað í þau ráð sem heyra undir stjórn knattspyrnudeildar, þ.e. meistaraflokksráð karla og kvenna auk barna- og unglingaráðs.

Hægt er að nálgast ársreikning knattspyrnudeildar fyrir árið 2025 á meðfylgjandi slóð:

https://www.hk.is/static/files/2025arsreikn/hk-knattspyrna-sameinadur-arsreikningur-2025.pdf