Æfingatafla knattspyrnudeildar vetur 2026-2027

Ný æfingatafla knattspyrnudeildar HK fyrir veturinn 2026–2027 liggur nú fyrir. Þar má finna yfirlit yfir fyrirhugaða æfingatíma flokka deildarinnar fyrir komandi vetur.

Skráning fyrir yngstu flokkana hefst í næstu viku og fer fram í gegnum Abler.

Réttir og uppfærðir æfingatímar eru ávallt birtir í Abler og eru iðkendur og forráðamenn hvattir til að fylgjast vel með þar, enda geta orðið breytingar á æfingatímum þegar líður á veturinn.

Upplýsingar um hópaskiptingar verða sendar frá þjálfurum hvers flokks þegar þær liggja fyrir.

Knattspyrnudeild HK áskilur sér rétt til að gera breytingar á æfingatöflunni ef þörf krefur.

Við hlökkum til nýs og skemmtilegs knattspyrnuvetrar með HK!

Skráning á Abler: Hér 

Frekari upplýsingar um skráningar iðkenda hér: Skráning | HK