Amanda og Eva ganga til liðs við HK


_

Þær Amanda Mist Pálsdóttir og Eva Karen Sigurdórsdóttir hafa gengið til liðs við meistaraflokk kvenna í knattspyrnu.

Amanda er reynslumikill leikmaður sem er uppalin á Akureyri. Hún kom inn í HK fyrir nokkrum árum og tók að sér þjálfun hjá félaginu við góðan orðstír. Hún er uppalin hjá Þór en hefur spilað með Völsungi, Aftureldingu/Fram og síðast hjá Hömrunum, einnig á hún 5 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.  

Amanda er öflugur leikmaður sem kemur með gæði og reynslu í okkar unga leikmannahóp.  Hún er fjölhæf og getur spilað í bakverði, kant og leyst af miðju. Einnig er hún mikill leiðtogi sem mun nýtast hópnum mjög vel.

Eva er uppalin hjá Fjölni og ung var hún komin í lykilhlutverk hjá liðinu. Frá Fjölni lá leið hennar til Gróttu þar sem hún spilaði í sumar. Eva á 2 leiki fyrir yngri landslið Íslands . 

Eva er öflugur leikmaður sem getur leyst ýmsar stöður á miðsvæðinu og úti á kanti. Hún hefur góða tækni, sendingar og gott auga fyrir spili. 

Við bjóðum þær Amöndu og Evu velkomnar og hlökkum til að fylgjast með þeim á vellinum.

Eva Karen SigurdórsdóttirAmanda Mist Pálsdóttir

                            Eva Karen Sigurdórsdóttir                                                                                    Amanda Mist Pálsdóttir