Aníta Eik áfram í Kórnum

Aníta Eik Jónsdóttir fyrirliði hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning.

 

“Við HK-ingar erum gríðarlega ánægðir að jafn flottur karakter og leikmaður hafi ákveðið að framlengja við félagið. Við lögðum miklu áherslu á að halda Anítu, hún hefur alla þá eiginleika sem góður íþróttamaður þarf að hafa til að ná langt og bindum við miklar vonir við hana og horfum björtum augum til framtíðarinnar” sagði Daníel Berg Grétarsson formaður handknattleiksdeildar.

 

Áfram HK!