Arnar Freyr framlengir við HK


Markvörðurinn öflugi Arnar Freyr Ólafsson hefur framlengt samning sinn við HK út keppnistímabilið 2023.

Arnar Freyr gekk til liðs við HK 2016 og allar götur síðan verið einn af lykilmönnum liðsins. Arnar Freyr hefur leikið 99 leiki í deild og bikar fyrir HK.

Við óskum Arnari Freyr hjartanlega til hamingju.

 

Áfram HK!


GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR