Arnar Gunnarsson ráðinn

Handknattleiksdeild HK hefur samið við Stefán Arnar Gunnarsson um að þjálfa kvennalið félagsins til loka þessarar leiktíðar.

“Arnar hefur áður starfað fyrir HK og hefur alla tíð síðan verið í miklum metum hjá félaginu enda fagmaður fram í fingurgóma.
Þegar hlutirnir þróðust á þann veg að hann var allt í einu á lausu þá lá það beinast við að við myndum reyna það sem við gætum til þess að landa honum.
Að loknu tímabilinu kemur Arnar síðan inn í þjálfarateymið karlamegin og mun sjá um þjálfun 3.flokks karla ásamt því að vera faglegur ráðgjafi deildarinnar.”

Stjórn handknattleiksdeildar HK