Brookelynn Entz semur við HK

HK hefur samið við hina 24 ára gömlu Brookelynn Entz um að leika með liðinu á næsta keppnistímabili.

Vart þarf að fjölyrða um hversu gífurlega mikill liðsstyrkur þetta er fyrir HK en hún kemur til liðsins frá Íslands- og bikarmeisturum Vals. Hjá Val náði miðjumaðurinn ekki að festa sig almennilega í sessi í byrjunarliðinu en tók þó þátt í 14 leikjum og skoraði 1 mark.

Brookelynn, sem er bandarísk og kemur úr sterku háskólaliði Kansas State, er væntanleg til landsins seinni part febrúarmánaðar og mun því fá nægan tíma til að kynnast nýjum liðsfélögum fyrir keppnistímabilið.

Velkomin Brookelynn! ❤️