- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
HK tryggði sér bikarmeistaratitil kvenna í blaki árið 2026 eftir afar spennandi úrslitaleik gegn KA um helgina.
HK byrjaði leikinn af krafti og náði góðri forystu með því að vinna fyrstu tvær hrinurnar. Liðið sýndi mikla yfirburði framan af og komst í 2–0.
KA-liðið svaraði þó með sterkum leik í þriðju hrinu og minnkaði muninn í 2–1, en HK lét það ekki slá sig út af laginu og kláraði leikinn með sigri í fjórðu hrinu, 25–20, og þar með 3–1 sigri.

Mynd: mummu lú
Með sigrinum tryggði HK sér bikarmeistaratitilinn á ný, en þetta er fyrsti bikarsigur félagsins síðan árið 2021.
Sigurinn er afrakstur mikillar vinnu og góðrar liðsheildar, þar sem leikmenn og þjálfarateymi hafa lagt mikið á sig í vetur. Frammistaða liðsins í úrslitaleiknum endurspeglar þann karakter og þá baráttu sem einkennt hefur hópinn á tímabilinu.
HK óskar leikmönnum, þjálfurum og stuðningsfólki innilega til hamingju með bikarmeistaratitilinn!

Mynd: Mummi lú