Stelpurnar bikarmeistarar í blaki 2026!

HK tryggði sér bikarmeistaratitil kvenna í blaki árið 2026 eftir afar spennandi úrslitaleik gegn KA um helgina.

HK byrjaði leikinn af krafti og náði góðri forystu með því að vinna fyrstu tvær hrinurnar. Liðið sýndi mikla yfirburði framan af og var staðan orðin 2–0, en KA-liðið gafst ekki upp og svaraði með sterkum leik í næstu tveimur hrinum. Þær jöfnuðu leikinn í 2–2 og knúðu fram oddahrinu. 

Mynd: mummu lú

Í oddahrinunni sýndi HK hins vegar styrk sinn og mikla seiglu. Liðið hélt einbeitingu á mikilvægum augnablikum og tryggði sér sigur eftir dramatískan lokakafla.
Með sigrinum tryggði HK sér bikarmeistaratitilinn á ný, en þetta er fyrsti bikarsigur félagsins síðan árið 2021.

Sigurinn er afrakstur mikillar vinnu og góðrar liðsheildar, þar sem leikmenn og þjálfarateymi hafa lagt mikið á sig í vetur. Frammistaða liðsins í úrslitaleiknum endurspeglar þann karakter og þá baráttu sem einkennt hefur hópinn á tímabilinu.

HK óskar leikmönnum, þjálfurum og stuðningsfólki innilega til hamingju með bikarmeistaratitilinn!

Mynd: Mummi lú